Votlendissjóður tilnefndur til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Sep 01, 2022

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða

Rétt eftir hádegi í dag fimmtudaginn 1. september voru lesnar upp tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, í beinni útsendingu frá Norðurlandahúsinu í Færeyjum. Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 er „Náttúrumiðaðar lausnir – alhliða svar við hinum stóru umhverfisáskorunum samfélagsins.” Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða.


Votlendissjóðurinn er tilnefndur til verðlaunanna í ár fyrir Íslands hönd. „Við erum svo einstaklega stolt af því að hljóta þessa tilnefningu og vera sett í sama flokk og allir sem hana hlutu í ár og allra þeirra sem hlotið hafa tilnefningar ráðsins í gegnum árin.” Sagði Ingunn Agnes Kro, formaður stjórnar Votlendissjóðs, þegar tilnefningarnar voru kynntar. „Þessi tilnefning er mikil viðurkenning fyrir sjóðinn og ekki síst fyrir frumkvöðulinn Eyþór Eðvarðssonar og þá einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök sem tóku þátt í því að gera þessa hugmynd að veruleika” 

Votlendissjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem er rekin á framlögum frá samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Endurheimt votlendis stöðvar losun koltvísýringsígilda, eflir líffræðilega fjölbreytni, fuglalíf og bætir vatnsbúskap í veiðiám.Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru ár hvert veitt einstaklingi, samtökum eða verkefni á Norðurlöndum sem lyft hefur grettistaki í þágu umhverfisverndar. Þema verðlaunanna er mismunandi frá ári til árs. Þema ársins er „Náttúrumiðaðar lausnir – alhliða svar við hinum stóru umhverfisáskorunum samfélagsins.” 

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Vinningshafarnir hljóta að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.https://www.norden.org/is/news/bein-utsending-tilkynnt-um-tilnefningar-til-umhverfisverdlauna-nordurlandarads-2022-0

By Einar Þór Bárðarson 31 Jan, 2023
Votlendissjóður stöðvar sölu kolefniseininga  þar til vottun er í höfn
By Einar Þór Bárðarson 25 Oct, 2022
Ein af aðalforsendunum í þessu ferli er að fá meðaltalslosun hektara á Íslandi staðfesta og verkefni Eflu þessa daganna er að taka saman öll rannsóknargögn Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskólans og setja saman í greinar sem fengju ritrýnda meðferð í viðurkenndum vísindaritum.
By Einar Þór Bárðarson 29 Jun, 2022
Landgræðslustjóri gerir alvarlegar athugasemdir við rannsókn á losun ræktarlands sem birt var á dögunum. Í grein sem hann birtir í Bændablaðinu segir hann "Úttektar- aðilar eru fljótir að sjá í gegnum óvönduð vinnubrögð." Greinina má lesa í heild sinni hér að neðan.
By Einar Þór Bárðarson 22 Apr, 2022
Í dag föstudaginn, 22 apríl afhend forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs .
By Einar Þór Bárðarson 06 Apr, 2022
Ný stjórn Votlendissjóðs  kom saman á sínum fyrsta stjórnarfundi síðasta mánudag.
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Síðustu daga hafa verið afgreidd tvö framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdir á vegum Votlendissjóðs 
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Votlendi njóta sérstakrar verndar sa mkvæmt náttúruverndarlögum
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Rýnihópur vélaverktaka með reynslu a f endurheimt votlendis kom að gerð námskeiðsins og sammældist um að námskeiðið væri afar gagnlegt .
By Einar Þór Bárðarson 17 Mar, 2022
Árskýrsla Votlendissjóðs aðgengileg
17 Mar, 2022
Ný stjórn var kjörin ársfundi Votlen dissjóðs 2022 þann 15. mars.
More Posts
Share by: