Ný stjórn var kjörin ársfundi Votlendissjóðs 2022, þriðjudaginn 15. mars. Endurkjörin voru þau Helga J. Bjarnadóttir verkfræðingur, Hjálmar Kristjánsson útgerðarmaður, Ingunn Agnes Kro lögfræðingur, Ólafur Eggertsson bóndi, Sveinn Ingvarsson bóndi og Þórunn Inga Ingjaldsdóttir viðskiptafræðingur. Þá voru kjörin ný inn til stjórnarstarfa þau Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kristrún Tinna Gunnlaugsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsbanka - stefnumótun og sjálfbærni, Sigurður Torfi Sigurðsson, verkefnastjóri lífræns landbúnaðar og Halldóra Kristín Hauksdóttir, eigandi Græneggja ehf. og stjórnarmaður í Bændasamtökum og lögfræðingur. Bjóðum við þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins.
Votlendissjóður
Árleyni 22 - 112 Reykjavík
Kennitala 620518-1230
Banki 537-26-516