Vegna hlýinda síðustu vikurnar fyrir jól og lítillar ofankomu gafst okkur tækifæri á því að hefja endurheimt á jörðunum Horni og Skógum í Mosdal við Arnarfjörð í desember. Jarðirnar eru suðvestur af ánni Dynjandi og ekki beint í alfaraleið. Endurheimtin náði yfir ga 26 hektara og þessi mynd var tekin úr dróna á vettvangi í blíðviðrinu við verklok, 22. desember. Árangur endurheimtar okkar í ár er þannig meiri en í fyrra þrátt fyrir erfitt vor vegna veðurs og veirunnar sem hrekkti allt og alla allt árið 2020.
Votlendissjóður
Árleyni 22 - 112 Reykjavík
Kennitala 620518-1230
Banki 537-26-516