Landgræðslan bauð stjórn Votlendissjóðs og formanni Loftslagsráðs í heimsókn

May 19, 2021

Stjórn Votlendissjóðs heimsótti mælingasvæði Landgræðslunnar

Landgræðslan bauð stjórn Votlendissjóðs og formanni Loftslagsráðs í heimsókn á vöktunar- og rannsóknasvæði sitt að Sogni í Ölfusi á dögunum. Sogn er eitt fjögurra vöktunarsvæða Landgræðslunnar þar sem fylgst er með árangri endurheimtar votlendis. Hin þrjú svæðin eru Ásbjarnarnes við Hóp, Ytri-Hraundalur á Mýrum í Borgarfirði og Brekka í Skagafirði. Verkefnið í Sogni er unnið í samstarfi við Landsvirkjun og hófst vinna við það árið 2017. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna mælingarnar og framkvæmd þeirra fyrir gestunum. 


Svæðið að Sogni er um 20 ha. að stærð og að mörgu leyti dæmigert fyrir votlendi sem var framræst víða um land frá stríðslokum, en talið er að um 50% votlendis á láglendi hafi verið framræst síðan þá. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær var Sogn framræst og þurrkað upp en loftmyndir frá 1977 sýna að skurðir höfðu þá þegar verið grafnir. Endurheimt svæðisins hófst 42 árum seinna eða haustið 2019 þegar Landgræðslan hóf það verk. Mælingar og vöktun höfðu byrjað fyrr á svæðinu eða 2017 og var það stór áfangi í því nýja hlutverki sem Landgræðslan hafði nýlega tekist á við árið 2016 þegar endurheimt votlendis varð hluti af vaxandi hlutverki stofnunarinnar.


F.v. Halldór Þorgeirsson formaður loftslagsráðs, Þröstur Ólafsson, formaður Votlendissjóðs, Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri, Sveinn Runólfsson fyrrverandi landgræðslustjóri stjórnarmenn í Votlendissjóðnum, Gústav M. Ásbjörnsson sviðsstjóri hjá Landgræðslunni, Helga J. Bjarnadóttir verkfræðingur hjá EFLU, Hjálmar Kristjánsson útgerðarmaður og Ingunn Agnes Kro lögmaður, stjórnarmenn í Votlendissjóði, Jóhann Thorarensen og Ölvir Styrmisson sérfræðingar hjá Landgræðslunni. Einar Bárðarson framkvæmdastjóri Votlendissjóðsins.


Myndina tók Árni Bragason framkvæmdastjóri Landgræðslunnar og gestgjafi hópsins. 


By Ingunn Kro 05 Nov, 2024
Er tækifæri fyrir þig í endurheimt votlendis?
By Einar Þór Bárðarson 25 Oct, 2022
Ein af aðalforsendunum í þessu ferli er að fá meðaltalslosun hektara á Íslandi staðfesta og verkefni Eflu þessa daganna er að taka saman öll rannsóknargögn Landgræðslunnar og Landbúnaðarháskólans og setja saman í greinar sem fengju ritrýnda meðferð í viðurkenndum vísindaritum.
By Einar Þór Bárðarson 01 Sep, 2022
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt starfsemi eða einstaklingi á Norðurlöndum sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir umhverfinu í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum umhverfinu til góða
By Einar Þór Bárðarson 29 Jun, 2022
Landgræðslustjóri gerir alvarlegar athugasemdir við rannsókn á losun ræktarlands sem birt var á dögunum. Í grein sem hann birtir í Bændablaðinu segir hann "Úttektar- aðilar eru fljótir að sjá í gegnum óvönduð vinnubrögð." Greinina má lesa í heild sinni hér að neðan.
By Einar Þór Bárðarson 22 Apr, 2022
Í dag föstudaginn, 22 apríl afhend forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, „Vonina“, þakklætis-viðurkenningu Votlendissjóðs .
By Einar Þór Bárðarson 06 Apr, 2022
Ný stjórn Votlendissjóðs  kom saman á sínum fyrsta stjórnarfundi síðasta mánudag.
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Síðustu daga hafa verið afgreidd tvö framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdir á vegum Votlendissjóðs 
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Votlendi njóta sérstakrar verndar sa mkvæmt náttúruverndarlögum
By Einar Þór Bárðarson 24 Mar, 2022
Rýnihópur vélaverktaka með reynslu a f endurheimt votlendis kom að gerð námskeiðsins og sammældist um að námskeiðið væri afar gagnlegt .
By Einar Þór Bárðarson 17 Mar, 2022
Árskýrsla Votlendissjóðs aðgengileg
More Posts
Share by: